Já sælt veri fólkið, ég hef ekki skrifað blogg í ótrúlega langan
tíma og satt að segja á ég örugglega ekki eftir að gera það
fljótlega aftur held ég.
Það er öruggleg mjög mikið búið að gerast síðan ég bloggaði
eitthvað síðast, það sem ég man er við fluttum í breiðholtið, við
eigum Ford F150, ég þreif bílinn minn ótrúlega vel að innan núna
síðustu helgi (tók sætin úr og allt), fyrsti alvarlegi snjórinn í
Reykjavík var gær, ég fékk gefins nagladekk í gær

, ég er búinn
að sofa þrisvar sinnum heima hjá mér

, það var brotist inn í
gullbenzinn fyrir utan hjá Berglindi í gærnótt

(mjög krípí), mér
gengur þokkalega vel í skólanum og fyrir þá sem ekki vita er ég í
Borharholtsskóla, skeljabrekkuferðin verður líklegast að dragast
alveg fram að janúar

(veit það verða margir ósáttir með það),
örugglega margir búnir að byrja saman og hætta saman og ég bara
held ég viti ekki meira af því ég er með hræðinlegt minni.
Í gær vorum við Berglind búin að vera saman í ár og 3 mánuði

og
er þetta alveg besta samband sem nokkur manneskja getur ímyndað
sér. Við gerðum reyndar ekkert til að halda upp á það og svo átti
mamma hennar líka afmæli þannig við héldum bara frekar upp á það.
Bíllinn minn er ennþá til sölu ef einhver hefur áhuga, Mercedes
Benz 280se, árgerð '83, ekinn 234.XXX km., rafmagn í öllu, webasto
forhitari, loftkæling, hiti í sætum, ný kerti, tandurhreinn að
innan og allt

. Þokkalega svalur rúntari sko

.
Held þetta sé bara komið þrátt fyrir tómleikann í þessu bloggi,
verð bara að játa það að ég er ekkert það rosalega góður bloggari
og ætla þess vegna að sleppa því að blogga á hverjum degi.
Og svo er svona mydaalbúm alveg neðst á síðunni.
Takk fyrir mig,
Ásgeir Örn Arnarson