Jólin að koma
kominn í jólafrí og það er mjög fínt, ég er samt búinn að vera að
vinna slatta mikið. En ég fékk 7,6 í meðaleinkunn eða eitthvað
Núna eru mæðgurnar Berglind og Margrét að skreyta jólatréð þeirra
og spila jólalög og svo í gær var Berglind og mamma að skreyta tréð
Ég hef ekkert rosalega mikið að segja, samt er ég forvitinn að vita
af hverju það eru svona margir alltaf að fara inná þessa síðu :S um
daginn voru eitthvað 57 manns búin að koma inn á síðuna á einum
degi! og það var svona um 5 leitið eða eitthvað. Ekkert smá skrítið
þar sem það voru alltaf alveg undir 10 manns að koma. En ég vill
Snjórinn að fara?
Fyrsta daginn eftir snjóbylinn fór ég eitthvað af stað á Benzinum
mínum á meðan allir voru pikkfastir og ég mokaði ekki einu sinni
neitt. Fór svo á Miklubrautina og hún var bara alveg á kafi það var
ekkert búið að skafa og bara nokkrir bílar búnir að fara þarna yfir
en þrátt fyrir það komst ég yfir þessa rosalegu ófæru og komst alla
leið upp í Breiðholt og þar byrjaði þetta að vera aðeins erfiðara.
Fyrir þá sem ekki hafa komið hingað heim til mín þá eru tveir eða
þrír inngangar í götuna mína og við förum alltaf inn um þann
fyrsta, en ég komst ekki þar inn af því ég festist bara og komst
ekkert upp þannig ég reyndi við númer tvö og komst þar upp en það
var nú samt ekkert auðvelt en svo þegar ég var kominn inn í götuna
endaði ég bara á alveg ótroðnum snjó sem náði hærra upp en
stuðarinn minn og ég þurfti að keyra í gegnum svona 100 metra af
þessum snjó til að komast að húsinu mínu. Aron var að moka planið
þegar ég var að fara í gegnum þetta og hann fór út á götu og horfði
Svo fór ég að vinna um kvöldið við að keyra út mat og það var
ekkert það auðveldasta sem var hægt að gera, en ég festist samt
Það er hins vegar lítið búið að gerast núna upp á síðkastið nema
það að ég fór í staffapartý um daginn og það var alveg helvíti
Núna þarf ég samt að ná í Berglindi í skólann þannig ég þarf að
Halló aftur!
tíma og satt að segja á ég örugglega ekki eftir að gera það
Það er öruggleg mjög mikið búið að gerast síðan ég bloggaði
eitthvað síðast, það sem ég man er við fluttum í breiðholtið, við
eigum Ford F150, ég þreif bílinn minn ótrúlega vel að innan núna
síðustu helgi (tók sætin úr og allt), fyrsti alvarlegi snjórinn í
Reykjavík var gær, ég fékk gefins nagladekk í gær :D, ég er búinn
að sofa þrisvar sinnum heima hjá mér :S, það var brotist inn í
gullbenzinn fyrir utan hjá Berglindi í gærnótt 8| (mjög krípí), mér
gengur þokkalega vel í skólanum og fyrir þá sem ekki vita er ég í
Borharholtsskóla, skeljabrekkuferðin verður líklegast að dragast
alveg fram að janúar :S (veit það verða margir ósáttir með það),
örugglega margir búnir að byrja saman og hætta saman og ég bara
Í gær vorum við Berglind búin að vera saman í ár og 3 mánuði :D og
er þetta alveg besta samband sem nokkur manneskja getur ímyndað
sér. Við gerðum reyndar ekkert til að halda upp á það og svo átti
mamma hennar líka afmæli þannig við héldum bara frekar upp á það.
Bíllinn minn er ennþá til sölu ef einhver hefur áhuga, Mercedes
Benz 280se, árgerð '83, ekinn 234.XXX km., rafmagn í öllu, webasto
forhitari, loftkæling, hiti í sætum, ný kerti, tandurhreinn að
Held þetta sé bara komið þrátt fyrir tómleikann í þessu bloggi,
verð bara að játa það að ég er ekkert það rosalega góður bloggari